Frá feti upp í flugskeið
Vantar þig hugmyndir til að bæta hestinn þinn, sjálfan þig sem knapa eða að upplifa skemmtilegan og lærdómsríkan dag?
Sýnikennslan frá “feti upp í flugskeið” verður haldin í reiðhöllinni á Svaðastöðum í tengslum við sýninguna Tekið til kostanna þann 21. apríl næstkomandi kl. 13:00 á vegum Reiðkennarabrautar Hólaskóla. Frítt er inn á sýnikennsluna.
Fjallað verður um þjálfunarstiga Hólaskóla þar sem lögð er áhersla á uppbyggilega og kerfisbundna þjálfun. Einnig verður lögð áhersla á gangtegundir og fjölbreytni í þjálfun.
Sýnikennslurnar eru eftirfarandi:
Gangtegundir og fjölbreytni: Þjálfunarstigi Hólaskóla:
Áhættuatriði í jafnvægisæfingum Samspil manns og hests
Tvítaumsvinna Rólegur
Fetþjálfun Sveigjanlegur og frjáls
Brokkþjálfun Samspora
Stökkþjálfun Hvelfdur
Töltþjálfun Kraftur, söfnun og yfirferð
Skeiðþjálfun
Hlökkum til að sjá sem flesta,
nemendur Reiðkennarabrautar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH