„Frábær gæðingur og góður vinur“

  • 8. ágúst 2023
  • Fréttir
Viðtal við Agnar Snorra Stefánsson sem sýndi efsta 7 vetra hestinn á mótinu

Efstur fyrir yfirlit í flokki sjö vetra stóðhesta er Kolgrímur Grímsson fra Gunvarby, sænsk ræktaður, með 8,71 í aðaleinkunn. Kolgrímur var sýndur af Agnari Snorra Stefánssyni sem er eigandi hestsins. Blaðamaður Eiðfaxa hitti Agnar að lokinni sýningu og tók hann tali.

„Kolgrímur er fyrst og fremst frábær gæðingur og góður vinur. Úrvals hestur með jafnar fimm gangtegundir, heill í hausnum og viljugur,“ segir Agnar sem fannst sýningin takast ágætlega í dag. „Hann getur verið bæði betri á tölti og skeiði. Mig langar rosalega að fá 9,0 fyrir fegurð í reið og það væri gaman að fá 9,0 fyrir skeið en ég tek bara því sem ég fæ. Ég hitaði kannski of lengi upp í dag. Ég misreiknaði mig aðeins en það var heitar í dag en hafði verið á æfingunum. Ég geri þau mistök ekki aftur. Finnst ég get sótt bæði skeið og fegurð í reið.“

Kolgrímur er undan Grími frá Esta-Seli sem er í eigu þeirra Agnars Snorra og Anne Stine Haugen á Stald Gavnholt. Grímur á fimm skráð afkvæmi á mótinu. „Kolgrímur er sá sem er líkastur Grími af þeim afkvæmum sem við höfum verið með og eigum við mikið undan honum. Við hugsum hann sem arftaka Gríms,“ segir Agnar en hann stefnir á að Kolgrímur verði næsti keppnishestur hjá honum og hefur sett markið á Heimsmeistaramótið í Sviss 2025.

Það fer vel um þau Anne Stine og Agnar á svæðinu en þau komu á mótsvæðið á föstudaginn. Agnar þekkir svæðið vel en hann sýndi einnig kynbótahross hér árið 2007 og 2017. „Við erum hér á tjaldsvæðinu og er það frábært þó það sé búið að rigna svona mikið. Það fer auðvitað miklu betur um okkur eftir að það hætti að rigna. Svæðið er frábært og ótrúlegt hvað völlurinn er búinn að þola mikið magn af vatni.“

Það voru margir svekktir þegar þeir lásu þær fréttir að Anne Stine væri búin að draga Hæmi fra Hyldsbæk úr keppninni en hann heltist rétt fyrir mót. Það voru margir spenntir að sjá þau Hæmi saman enda í fremstu röð fjórgangara í heiminum. „Það er allt gott að frétta af honum. Anne Stine vildi ekki taka neina sénsa með að taka hann með. Það eru nú bara tvö ár í næsta mót verði.“

Aðspurður hvernig leikar fara segir Agnar mótið vera galopið. „Mér líst vel á styrkleika mótsins. Held að a-úrslitin séu galopin í öllum greinum. Eins og í fjórgangnum eiga Jóhanna Margrét, Christina Lund og Frauke Schenzel allar séns. Stjáni Magg getur líka verið drullu seigur. Það er það sama í töltinu. Jóhanna Margrét kannski sigurstranglegust þar. Fimmgangurinn er galopinn,“ segir Agnar Snorri rétt áður enn að hann hélt á skeiðbrautina að horfa á gæðingaskeiðið.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link