Frábær klárhestafaðir

  • 30. júní 2012
  • Fréttir
Frábær klárhestafaðir

Eldjárn hefur nú bætt enn einni skrautfjöðrinni í hatt sinn. Hann hlaut nú áðan 1.verðlaun fyrirafkvæmi, en í gær vann hann B-úrslit í B-flokki gæðinga og er nú í þriðja sinn í A-úrslitum á Landsmóti.

Eldjárn er að gefa mjög áhugaverð klárhross, en tvær dætur hans eru í verðlaunasæti kynbótahrossa hér á mótinu en það er annars vegar Kvika frá Leirubakka, 4 vetra klárhryssa með 8,17 í aðaleinkunn m.a. 9,0 fyrir tölt, vilja/geðslag og fegurð í reið. Svo stendur Eldjárnsdóttirin Fura frá Hellu efst í flokki 5 vetra hryssna með 8,46 í aðaleinkunn m.a. 9,5 fyrir tölt og fegurð í reið og 9,0 fyrir brokk, vilja/geðslag og fet.

Eldjárn er sannarlega að skipa sér í fremstu röð klárhestafeðra landsins og gaman verður að sjá hann í úrslitunum á morgun.

IS2007286220 Fura frá Hellu
Örmerki: 000004709335
Litur: 2500 Brúnn/milli- einlitt
Ræktandi: Guðmundur Friðrik Björgvinsson
Eigandi: Marie Cecilie Clausen Kolnes
F.: IS2000184814 Eldjárn frá Tjaldhólum
Ff.: IS1991157345 Hugi frá Hafsteinsstöðum
Fm.: IS1983276001 Hera frá Jaðri
M.: IS1991286860 Ösp frá Skammbeinsstöðum 3
Mf.: IS1985186011 Ásaþór frá Stóra-Hofi
Mm.: IS1988286860 Frökk frá Skammbeinsstöðum 3
Mál (cm): 142 – 140 – 64 – 145 – 29,0 – 18,0
Hófa mál: V.fr.: 8,2 – V.a.: 8,2
Sköpulag: 8,5 – 9,0 – 8,0 – 8,5 – 8,0 – 8,5 – 8,0 – 7,0 = 8,38
Hæfileikar: 9,5 – 9,0 – 5,0 – 8,5 – 9,0 – 9,5 – 9,0 = 8,50
Aðaleinkunn: 8,46
Hægt tölt: 8,5      Hægt stökk: 8,5
Sýnandi: Guðmundur Friðrik Björgvinsson

IS2008286701 Kvika frá Leirubakka
Örmerki: 352206000032535
Litur: 1520 Rauður/milli- stjörnótt
Ræktandi: Anders Hansen
Eigandi: Jakob Hansen, Lilja Gísladóttir
F.: IS2000184814 Eldjárn frá Tjaldhólum
Ff.: IS1991157345 Hugi frá Hafsteinsstöðum
Fm.: IS1983276001 Hera frá Jaðri
M.: IS1987286706 Embla frá Árbakka
Mf.: IS1981186003 Draupnir frá Hvolsvelli
Mm.: IS1970258992 Hrönn frá Kolkuósi
Mál (cm): 138 – 134 – 62 – 140 – 27,0 – 17,0
Hófa mál: V.fr.: 8,3 – V.a.: 8,1
Sköpulag: 8,5 – 8,5 – 8,5 – 8,5 – 7,5 – 7,5 – 8,0 – 7,5 = 8,16
Hæfileikar: 9,0 – 8,5 – 5,0 – 8,5 – 9,0 – 9,0 – 8,0 = 8,17
Aðaleinkunn: 8,17
Hægt tölt: 8,5      Hægt stökk: 8,0
Sýnandi: Jóhann Kristinn Ragnarsson

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link