Frábær tilþrif hjá Frauke og Óðni
Frauke Schenzel og Óðinn vom Habichtswald á HM2019 mynd: Sofie Lahtinen Carlsson
Keppni í fimmgangi fer nú fram á Þýska Meistaramótinu á Hirtenhof og þegar þetta er ritað hafa 23 knapar af þeim 74 sem skráðir eru til leiks lokið keppni.
Sýning Frauke Schenzel á Óðni vom Habichtswald tekur þó öðrum fram og var hún vægt til orða tekið frábær. Frauke hlaut einkunnina 7,90, sem er næst hæsta einkunn ársins á eftir Jóni Stenild og Eilífi fra Teglborg sem hlutu 7,93 á Danska meistaramótinu.
Hægt er að kaupa sér beina útsendingu frá mótinu sem vel er staðið að, myndtaka góð og góð gæði með því að smella hér.
Ennþá eiga margir hátt skrifaðir knapar og hestar eftir að mæta til leiks í fimmgangi en staða fimm efstu að svo stöddu er eftirfarandi.
| # | Knapi | Hestur | Einkunn |
| 1 | Frauke Schenzel | Óðinn vom Habichtswald | 7,90 |
| 2 | Vicky Eggertsson | Gandur vom Sperlinghof | 7,30 |
| 3 | Catherina Müller | Á frá Pétursbergi | 7,03 |
| 4 | Leonie Hoppe | Fylkir vom Kranichtal | 6,97 |
| 5 | Beggi Eggertsson | Bassi frá Sólheimum | 6,80 |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH