Frábært mót fór fram í Hafnarfirði um helgina
Frá verðlaunaafhendingu í tölti
Hafnarfjarðarmeistaramót Sörla fór fram um helgina í blíðskaparveðri og góðri stemningu. Skráning á mótið var góð og margar frábærar sýningar litu dagsins ljós. Keppt var í hinum hefðbundnu flokkum íþróttakeppninnar auk 100 metra skeiðs.
Hanna Rún Ingibergsdóttir var sigursæl á mótinu því hún varð efst í tveimur keppnisgreinum, fjórgangi og tölti meistaraflokki. Hún reið Grím frá Skógarási í fjórgangi og hlaut í einkunn 7,20 í úrslitum og Ísrúnu frá Kirkjubæ í tölti þar sem hún hlaut í einkunn 7,61 en hún hafði betur gegn Guðmundi Björgvinssyni og Sölva frá Auðsholtshjáleigu á sætaröðun dómara. Flott byrjun á ferli Ísrúnar sem töltkeppnishryssu.
Guðmundur fór þó ekki heim titlalaus, frekar en fyrri daginn, því hann sigraði keppni í slaktaumatölti meistara á Óperu frá Litla-Garði með 7,50 í einkunn.
Flosi Ólafsson stóð efstur í fimmgangi meistara á Dreyra frá Hofi með 7,33 í einkunn í úrslitum. Þar er kominn fram frábær keppnishestur í fimmgangi með allar gangtegundir heilar.
Daníel Gunnarsson setti góðan tíma í 100 metra skeiði á Einingu frá Einhamri 2 en tíminn var 7,90 sem dugði til sigurs í þeirri grein.
Af öðrum glæstum sigrum má nefna Benjamín Sand Ingólfsson og Snilld frá Lauganesi sem stóðu efst í gæðingaskeiði ungmenna með hæstu einkunn mótsins í þeirri grein, 7,25.
Öll úrslit mótsins má sjá í LH Kappa.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Ásmundur Ernir og Hlökk efst á heimslista ársins í tölti T1