Frábært styrktarmót Léttis
Styrktarmót fyrir Jóns Björns Arasonar og fjölskyldu var haldið í gærkveldi. Mikil og góð stemming var í Top Reiter höllinni og hestarnir hverjum öðrum glæsilegri, samkvæmt fréttatilkynningu frá hestamannafélaginu Létti. „Systkin Jónba mættu og var mjög gaman að sjá þau. Árni Arason bróðir Jónba afhenti verðlaunin og þökkum við honum kærlega fyrir.
Uppboð var haldið á folatollum fjögurra 1. verðlauna stóðhesta, þeirra Svali frá Sámsstöðum, Símon frá Efri-Rauðalæk, Stáli frá Ytri-Bægisá og Hrymur frá Hofi. Uppboðið var skemmtilegt, Hólmgeir Vald. var sölustjóri og fórst það verkefni mjög vel úr hendi. Við þökkum eigendum þessara hesta kærlega fyrir þeirra framlag í söfnunina.
Folatollana ber að greiða inná 162-15-383734 kt 280656-2679. Þeir sem vilja styrkja Jónba og fjölskyldu geta einnig lagt inn á þennan reikning.
Gaman var að sjá hvað börnin, unglingarnir og ungmennin eru vel ríðandi og hlakkar okkur til að fylgjast með þeim í vetur.“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH