Fræðslufundaröð HEÞ
Heilbrigði hrossa verður rætt á fræðslufundi sem Hrossaræktarsamtök Eyfirðinga og Þingeyinga stendur fyrir þann 13. desember nk.
„Til stendur að halda þrjú fræðslukvöld í vetur á vegum Hrossaræktarsamtaka Eyfirðinga og Þingeyinga og fá til þess þar til bæra sérfræðinga. Fyrsta erindið verður haldið nú í desember og mun það fjalla um heilbrigði hrossa. Það næsta er fyrirhugað janúar þar sem tekin verður fyrir fóðrun reið- og keppnishrossa. Það síðasta er svo á áætlað í mars en efni hefur ekki verið endanlega ákveðið og verða tvö hin síðari nánar auglýst þegar nær dregur.
Fyrsta kvöldið – Heilbrigði hrossa
Fimmtudagskvöldið 13. desember n.k. mun Gestur Júlíusson dýralæknir halda fræðsluerindi um heilbrigði hrossa. Fræðslukvöldið verður haldið í Búgarði Akureyri og hefst kl. 20:30. Aðgangseyrir er kr. 1.000.- og er öllum opið,“ segir í tilkynningu frá HEÞ.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
LH auglýsir eftir mótshöldurum