Fræðslufundir hjá Fáki

  • 28. október 2013
  • Fréttir
Allir velkomnir

Í þessari viku verða tveir fróðlegir fræðslufundir hjá Fáki sem eru öllum opnir og kostar kr. 500 inn. Fræðslufundirnir verða í félagsheimilinu og hefjast kl. 18:00.

Þriðjudaginn 29. okt. verður Sigurður Sæmundsson járningameistari með fyrirlestur um hófhirðu og járningar. Hann kemur inn á allt sem viðkemur hófum hesta, meðhöndlun og járningum.

Miðvikudaginn 30. okt verður Ólöf Loftsdóttir dýralæknir með fyrirlestur um allt sem viðkemur heilsu hrossa. Hún kemur inn á margt s.s. líkamsparta hestsins og virkni þeirra, helstu einkenni sjúkdóm og margt fleira.

Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir og hvetjum við alla félagsmenn sem og aðra hestaáhugamenn að nýta sér þessa fræðslufundi.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link