Fræðslufyrirlestur um liti og litaerfðir hrossa
Skemmti- og fræðslunefnd Dreyra heldur í samstarfi við Endurmenntun LbhÍ fræðslufyrirlestur um liti og litaerfðir hrossa fimmtudaginn 26.janúar kl 19:45-22:00 í félagsheimili Dreyra á Æðarodda.
Á fyrirlestrinum verður farið yfir helstu hrossaliti og erfðum þeirra líst. Myndir verðar notaðar og raunveruleg dæmi tekin til útskýringa. Markmiðið er að þátttakendur öðlist skilning á helstu atriðum litaerfðanna.
Aðgangaseyrir er 1.000 kr. fyrir skuldlausa félagsmenn en utanfélagsmenn greiða 1.500 kr. greiðist á staðnum. Fríar veitingar verða á staðnum.
Fyrirlesari er Guðni Þorvaldsson frá Landbúnaðarháskóla Íslands.
Skráning hjá Endurmenntun LbhÍ um tölvupóstinn [email protected] (nafn, kennitala, heimili og sími) eða í síma 433-5000. Einnig er hægt að hafa samband við Siggu S. í síma 868-5153 eða Elísabetu í síma 849-6993.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson