Fræðslukvöld um kynbótamat íslenskra hrossa
Minnum á fræðslufund um kynbótamat íslenskra hrossa í kvöld kl. 19:45 til 22:00 í félagsheimili hestamannafélagsins Sleipnis, Hliðskjálf, Suðurtröð (hesthúsahverfinu á Selfossi).
Farið verður yfir kynbótamatið, uppbyggingu þess og útfærslu. Enn fremur verður farið í þróun kynbótamatsins, samþættingu þess við keppniseiginleika og mikilvægi þess að taka tillit til forvals í gögnum. Markmiðið er að þátttakendur öðlist skilning á helstu atriðum kynbótamatsins og hvernig ræktendur geti nýtt sé það í ræktunarstarfinu.
Kennari: Dr. Elsa Albertsdóttir við LbhÍ
Verð: 1000 kr fyrir félagsmenn og 1500 kr fyrir aðra – greiðist á staðnum (ekki hægt að greiða m. greiðslukortum).
Skráningar hjá Endurmenntun LbhÍ: Um tölvupóstinn [email protected] (nafn, kennitala, heimili og sími) eða í síma 433 5000, einnig hægt að skrá sig á staðnum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH