Fræðslunefnd óskar eftir umsóknum um reiðkennslu 2021-2022
Mynd af vefsíðu Fáks
Fræðslunefnd Fáks undirbýr nú næsta starfsár og hefur hug á því að hefja tímabilið af krafti næstkomandi haust.
Óskar nefndin því eftir umsóknum frá áhugasömum reiðkennurum sem hefðu hug á því að kenna eða vera með sýnikennslu í Fáki á tímabilinu september 2021 til maí 2022. Fyrirkomulagið getur verið margvíslegt, allt frá dagsnámskeiði til viku- eða mánaðarlegra námskeiða yfir ákveðið tímabil svo dæmi sé tekið.
Þá hefði nefndin einnig áhuga á að heyra frá öðru fagfólki í hrossarækt sem hefði áhuga á því að vera með fræðslu fyrir Fáksfélaga. Þeir fræðslufundir sem voru haldnir í vetur voru mjög vel sóttir og áhugi félagsmanna mikill um allt sem viðkemur hestamennskunni.
Tekið verður við umsóknum/fyrirspurnum á netfanginu [email protected] til og með
6. júní 2021. Í umsókninni þarf að koma fram um hvers konar námskeið eða fræðslu er að ræða.
Nefndin áskilur sér rétt til þess að velja og hafna umsóknum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH