Fræðsluþing um járningar

  • 16. september 2011
  • Fréttir
Fræðsluþing um járningar

Fræðsluþing um járningar verður haldið á Hvanneyri dagana 28.-29. Október nk. að er fram kemur í tilkynningu frá Endurmenntun Landbúnaðarháskólans.

 
„Að þinginu standa  Járningamannafélag Íslands og Landbúnaðarháskóli Íslands undir kjörorðunum fræðsla, kynning og skemmtun.
Í boði verður fjölbreytt dagskrá sem byggist upp á námskeiði, fræðsluerindum og sýningum sem undirstrika mikilvægi góðrar hófhirðu og járninga þar sem fagleg vinnubrögð og líffræðileg þekking eiga að koma saman.
 
Dagskrá verður á þá leið að á föstudagurinn 28. október verður haldið námskeið í sjúkra- og jafnvægisjárningum.
Um kvöldið er stefnan að halda aðalfund  Járningamannafélags Íslands.
 
Laugardagurinn 29. október verður Dagur járninga. Opin dagskrá fyrir almenning, með fyrirlestrum,  verksýningum og skemmtun.
Dagskráin endar á Íslandsmóti í járningum sem nú verður haldið í þriðja sinn.
 
Dagskrá verður nánar auglýst síðar.“

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link