Þrjú framboð til formanns LH
Framboðsfrestur var til fimmtudags 10. október sl. en hér fyrir neðan er listi með þeim framboðum sem bárust kjörnefndinni.
Stjórn LH fer með æðsta vald í málefnum sambandsins milli þinga. Stjórnin skal skipuð sjö mönnum, formanni, varaformanni, ritara, gjaldkera og þremur meðstjórnendum. Varastjórn skal skipuð fimm mönnum. Kjörtímabil er til tveggja ára.
Framboð til formanns
- Fjóla S. Kristinsdóttir, Hestamannafélaginu Sleipni
- Guðni Halldórsson, Hestamannafélaginu Herði
- Linda B. Gunnlaugsdóttir, Hestamannafélaginu Spretti
Framboð til aðalstjórnar:
- Hákon Hákonarson, Hestamannafélaginu Herði
- Jón Þorberg Steindórsson, Hestamannafélaginu Geysi
- Ólafur Gunnarsson, Hestamannafélaginu Jökli
- Ólafur Þórisson, Hestamannafélaginu Geysi
- Sóley Margeirsdóttir, Hestamannafélaginu Geysi
- Sveinn Heiðar Jóhannesson, Hestamannafélaginu Sörla
- Valdimar Ólafsson, Hestamannafélaginu Dreyra
- Unnur Rún Sigurpálsdóttir, Hestamannafélaginu Skagfirðingi
- Þórhildur Katrín Stefánsdóttir, Hestamannafélaginu Hornfirðingi
Framboð til varastjórnar:
- Reynir Atli Jónsson, Hestamannafélaginu Freyfaxa
- Sigurbjörn Eiríksson, Hestamannafélaginu Spretti
Skv. gr. 4.6 í lögum LH er kjörnefnd heimilt að samþykkja framboð sem koma fram eftir að framboðsfresti lýkur, enda hafi ekki komið fram nægur fjöldi frambjóðenda. Nú háttar svo til að ekki hafa jafn margir boðið sig fram í varastjórn og kjósa skal og er því opið fyrir framboð í varastjórn og skulu þau berast til formanns kjörnefndar á netfangið vodlarhestar@gmail.com.