Framhaldsskólanefndin í hestaíþróttum
„Það styttist í að umsóknarfrestur í framhaldsskólanefndina í hestaíþróttum renni út. Við í nefndinni hvetjum hestafólk í mennta- og framhaldsskólum landsins sem hafa áhuga á keppni og mótshaldi að sækja um og taka þátt í starfinu með okkur.
Framhaldsskólanefndin samanstendur af hestafólki sem stundar nám við framhaldsskóla og skipuleggjaur saman hið árlega framhaldsskólamót í hestaíþróttum þar sem skólar víðsvegar um landið mæta og taka þátt. Í umsókninni þarf að koma fram helstu upplýsingar um ykkur, fullt nafn, aldur, símanúmer, í hvaða skóla þið eruð og afhverju þið hafið áhuga á að starfa í nefndinni.
Umsóknir þurfa að berast inn fyrir þann 31. október næstkomandi á [email protected]
. Ef það vakna einhverjar spurningar getið þið haft samband í síma 847-1279 eða sent e-mail.
“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH