Framkvæmdir á Fákssvæðinu

  • 30. desember 2010
  • Fréttir
Framkvæmdir á Fákssvæðinu

Það leynist engum sem leggur leið sína inn á félagssvæði hestamannafélagsins Fáks í Reykjavík að þar stendur eitthvað til…

Landsmót 2012 er í undirbúningi og er verið að gera miklar breytingar á svæðinu. Eiðfaxi var á ferðinni á þessum slóðum á dögunum og tók þá þessar myndir af framkvæmdum við Hvammsvöllinn svokallaða. Þar er verið að stækka áhorfendabrekkur og stórt plan hefur verið útbúið gegnt þeim hinum megin við völlinn en þar er hugmyndin að hægt verði að setja upp áhorfendapalla svipaða þeim sem gestir heimsmeistaramóta þekkja.
Spennandi verður að fylgjast með gangi mála hjá Fáki.
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link