Framlengdur skráningafrestur
Ákveðið hefur verið að framlengja skráningu á opna WR íþróttamót Harðar sem haldið verður helgina 11.- 13.maí til kl 17:00 þriðjudaginn 8.maí.
Búið er að bæta við einni keppnisgrein í barnaflokk sem er T7 þar sem knapar sýna hægt tölt og frjálsa ferð. Tilvalið fyrir þau börn sem eru að stíga sín fyrstu skef á keppnisbrautinni.
Allt stefnir í fjölmennt og flott mót þar sem flottir hestar og knapar eru munu sýna sitt besta á frábæru svæði Harðarmanna að Varmárbökkum í Mosfellsbæ.
Með keppniskveðju
Mótanend Harðar
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH