Framlengdur skráningarfrestur á kynbótsýningu FM2023
Fjórðungsmót Austurlands 2023, í samstarfi við RML, kynnir að skráningarfrestur hefur verið framlengdur á opna kynbótasýningu FM2023 á Stekkhólma við Egilsstaði. Eigendum og aðstandendum kynbótahrossa er þar með gert kleift að skrá sín hross frjálst á vefsvæði RML til og með sunnudeginum 2. Júlí.
Framkvæmdanefnd Fjórðungsmóts og RML hvetja eigendur og sýnendur til að nýta sér þennan viðburð til að sýna sín hross og koma þeim á framfæri á skemmtilegasta hestaviðburði ársins.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH