Framlengdur skráningarfrestur í úrtöku Uppsveitadeildar
Reiðhöllin á Flúðum auglýsir úrtöku fyrir Uppsveitadeildina 2012:
Þátttakendur skulu vera félagar í hestamannafélögunum Loga Trausta og Smára.
Úrtakan verður haldin í Reiðhöllinni á Flúðum þann 27 ágúst kl 14.00
Keppt verður í fjórgang og fimmgang eftir FIPO reglum.
Keppt verður um 11 laus sæti í deildinni þ.e 6 sæti Smárafélaga, 2 sæti Logafélaga og 3 sæti Traustafélaga.
Í skráningu þarf að koma fram IS nr hests og kt knapa. Skráningar sendist á [email protected] FYRIR KL. 20.00 MIÐVIKUDAGSKVÖLDIÐ 24 ÁGÚST.
Skráningargjald er 3000 kr og greiðist á staðnum
Hægt er að nálgast reglurnar á heimasíðum hestamannafélagana.
www.smari.is http://hestamannafelagidlogi.bloggar.is http://trausti.123.is
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH