Framundan í vikunni
Það er nóg um að vera í hestamennskunni um þessar mundir og ætlar Eiðfaxi að setja niður helstu viðburði sem eru framundan í vikunni. Ef þú manst eftir einhverjum fleirum máttu endilega benda okkur á það – [email protected]
Mánudagur 20.febrúar
- Blue Lagoon mótaröðin í Spretti heldur áfram en keppt verður í fjórgangi.
Þriðjudagur 21.febrúar
- Gæðingamót Grana á Mið-Fossum en keppt verður í b flokki
Miðvikudagur 22.febrúar
- Fyrirlestur í Fáki um hestaaugað sem dýralæknirinn Susanne Kaarsholm er með. Fyrirlesturinn er opinn öllum.
- KS deildin hefst en keppt verður í gæðingalist.
- Búgreinaþing Bændasamtakanna
Fimmtudagur 23.febrúar
- Sýnikennsla með Súsönnu Sand í Herði – ATH hefur verið færð til 9.mars
Föstudagur 24.febrúar
- Vesturlandsdeildinn byrjar en fyrsta mót er fjórgangur Vesturlandsdeildarinnar
- Sprettur heldur opið töltmót.
- WorldToelt í Herning er um helgina
Laugardagur 25.febrúar
- Líflandsdeild Léttis hefur göngu sína á keppni í fjórgangi.
- B.E. mótaröð Æskunnar á Akureyri verður á sínum stað en fyrsta mótið er þennan dag og verður keppt í fjórgangi
- Hestamannafélagið Þytur heldur mótaröð í vetur og verður keppt í fjórgangi að þessu sinni.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH