Norðurlandamót Freja efst í fimmgangi unglinga

  • 6. ágúst 2026
  • Fréttir

Freja Hesselbjerg og Tóra fra Almindingen Mynd: Cassandra Laikmets/CLfoto

Viktor Arnbro er í öðru sæti eftir forkeppni.

Dagurinn hófst á fimmgangi í unglingaflokki. Hægt er að fylgjast með Norðurlandamótinu í beinni á EiðfaxaTV.

Fimm knapar tóku þátt í flokknum og eru það Freja Hesselbjerg og Tóra fra Almindingen sem eru efstar eftir forkeppni með 6,33 í einkunn en þær keppa fyrir  Danmörku.

Íslendingar áttu einn fulltrúa, Viktor Arnbro en hann og Ársól från Stensäter eru í öðru sæti eftir forkeppni með 5,93 og þriðju eftir forkeppni er Julie Forberg á Taktík fra Teland með 5,17 í einkunn.

Niðurstöður úr forkeppni í fimmgangi í unglingaflokki
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Freja Hesselbjerg Tóra fra Almindingen 6,33
2 Viktor Arnbro Ársól från Stensäter 5,93
3 Julie Forberg Taktík fra Teland 5,17
4 Molly Öberg Lótus från Ödegården 4,87
5 Majken Roström Arfur frá Steinskoti 1 3,57

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link