Freja og Tóra Norðurlandameistarar unglinga í fimmgangi
Úrslitadagur Norðurlandamóts í hestaíþróttum er upp runninn sem að sjálfsögðu er í beinni á EiðfaxaTV en allar upplýsingar, ráslista og dagskrá er hægt að sjá í HorseDay og einnig má sjá dagskrá dagsins hér.
Fyrstu úrslit dagsins voru A-úrslit í fimmgangi unglinga þar sem íslendingar áttu einn fulltrúa, Viktor Arnbro á Ársólu från Stensäter.
Norðurlandameistari árið 2026 er Freja Hesselbjerg á Tóru fra Almindingen með 5,55 í eiknunn í öðru sæti örlítið lægri í einkunn var Molly Öberg á Lótusi från Ödergården með 5,52 og í þriðja sætinu Julie Forberg á Taktík fra Teland með 5,14. Viktor var í baráttunni um sigur fram að sýningum á skeiði þar sem þau Ársól náðu ekki að sýna sitt besta í dag.
| Sæti | Keppandi | Þjóðerni | Heildareinkunn |
| 1 | Freja Hesselbjerg / Tóra fra Almindingen | Danmörk | 5,55 |
| 2 | Molly Öberg / Lótus från Ödegården | Svíþjóð | 5,52 |
| 3 | Julie Forberg / Taktík fra Teland | Noregur | 5,14 |
| 4 | Majken Roström / Arfur frá Steinskoti 1 | Svíþjóð | 5,02 |
| 5 | Viktor Arnbro / Ársól från Stensäter | Ísland | 4,26 |
Freja og Tóra Norðurlandameistarar unglinga í fimmgangi