Fréttir af hestamannafélögum

  • 26. nóvember 2012
  • Fréttir
Fréttir af hestamannafélögum

Mikið undirbúningsstarf liggur fyrir hestamannafélögin fyrir komandi vetur og er ekki annað að sjá á vefsíðum félaganna en að líflegt ár sé framundan.

 
  • Hestamannafélagið Fákur fagnaði 90 ára starfsafmæli sínu með mikilli hátíð sl. laugardag 24. nóvember. Formaður félagsins, Rúnar Sigurðsson skrifar ársannál á heimasíðu Fáks og má nálgast hann hér. 
  • Aðalfundur Blæs var haldinn í síðustu viku en brátt mun félagið standa fyrir jólamarkaði í Dalahöllinni.
  • Aðalfundur Brimfaxa verður haldinn 17. desember kl. 20 í Salthúsinu.
  • Hestamannafélagið Faxi stendur fyrir folaldasýningu í reiðhöllinni Faxaborg 2. desember nk. kl. 14. Aðalfundur félagsins verður svo haldinn 4. desember nk. Þar mun Erling Sigurðsson vera með fræðsluerindi um skeið.
  • Hið árlega bingó hestamannafélagsins Freyfaxa verður haldið að Iðavöllum fimmtudaginn 6. desember.
  • Mótanefnd hestamannafélagsins Glaðs hefur ákvarðað mótadaga sýna. Þá má nálgast hér.
  • Aðalfundur Léttis verður haldinn í Top Reiter höllinni, þriðjudaginn 27. nóvember kl. 20.
  • Ásmundur Ernir Snorrason var valinn íþróttamaður Mána á aðalfundi þess 22. Nóvember sl. Hestamannafélagið boðar félaga og þá sem eiga hesta á beit á Mánagrund að taka hrossin laugardaginn 8. desember kl 13. Nánar hér. 
  • Ólafur Magnússon var hins vegar valinn íþróttamaður Neista á uppskeruhátíð húnvetnskra bænda. Nánar hér.
  • Hestamannafélagið Sindri stóð fyrir folaldasýningu um liðna helgi. Þar sigruðu folöld undan Natani frá Ketilsstöðum og Kjarna frá Þjóðólfshaga 1. Nánar hér.
  • Hestamannafélagið Snæfellingur ætlar hins vegar að halda folaldasýningu sunnudaginn 2. desember nk. Félagið hélt sína Uppskeruhátíð á dögunum þar sem knapar og ræktendur voru verðlaunaðir. Nánar hér.
  • Hestamannafélagið Þytur hefur sett niður vetrardagskrá í viðburðardagatal á vefsíðu sinni.
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link