Fríð og vel gerð hryssa
Í ár voru sýndar 217 sex vetra hryssur en þetta var næststærsti flokkurinn í ár. Efsta hryssan í þessum flokki og efst á Landsmóti var Jörð frá Kolturey. Þetta er afar fríð og vel gerð hryssa, með mikla skrokkmýkt, undan Óðni frá Eystra-Fróðholti og Flugu frá Sauðárkróki. Hákonsdóttirin Hansa frá Ljósafossi vakti mikla athygli á Landsmótinu en þar hlaut hún 8,94 fyrir hæfileika sem er hæsta hæfileikaeinkunn sem sex vetra hryssa hlaut í ár. Þriðja er heimsmetshafinn Hamingja frá Hellubæ en hún setti heimsmet á Landsmóti á Hellu 2014 þegar hún hlaut hæsta dóm sem fjögurra vetra hryssa hefur hlotið frá upphafi.
AE Nafn Faðir Móðir
8.67 Jörð Koltursey Óðinn Eystra-Fróðholti Fluga Sauðárkróki
8.62 Hansa Ljósafossi Hákon Ragnheiðarstöðum Sunna-Rós Úlfljótsvatni
8.59 Hamingja Hellubæ Aðall Nýjabæ Þula Hellubæ
8.58 Skvísa Skagaströnd Klettur Hvammi Þruma Skagaströnd
8.52 Hildur Feti Stormur Leirulæk Fingurbjörg Feti
8.50 Harpa Sjöfn Hvolsvelli Mjölnir Hlemmiskeiði 3 Orka Hvolsvelli
8.49 Gná Eystra-Fróðholti Sær Bakkakoti Gletta Bakkakoti
8.48 Eiða Óskarshóli Vídalín Hamrahóli Erla Reykjavík
8.48 Freyja Vöðlum Forseti Vorsabæ II Nótt Oddsstöðum I
8.46 Álfrún Egilsstaðakoti Álfur Selfossi Snögg Egilsstaðakoti
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH