Fríður, léttbyggður og geðgóður
Alllangt er síðan stóðhestur úr Hornafirði, sem er að miklu eða mestu leyti af gamla hornfirska hrossastofninum, hefur komið fram í keppni og kynbótasýningu á Landsmóti. Magni frá Hólum í Hornafirði er 6v stóðhestur undan hornfirskri hryssu, Kylju frá Kyljuholti, og Víði frá Prestsbakka, sem er skyldleikaræktaður út af Ófeigi frá Flugumýri, sem var að allmiklu leyti hornfirskrar ættar. Út af Hæringi frá Fornustekkum og Nökkva frá Hólmi. Ófeigur frá Flugmýri er einnig í móðurætt Magna og Nökkvi margoft í ættartréinu. Magni er með 9,5 fyrir tölt og 9,0 fyrir vilja og fegurð, léttbyggður og fríður eins og pabbi sinn. Spennandi hestur fyrir þá sem vilja rækta hornfirskt.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH