Frjósemi íslenskra hryssa II
Nýköstuð hryssa. Mynd: Charlotta Oddsdóttir.
Fyrir tveimur vikum birtist fyrsta grein í greinaröð um frjósemi íslenskra hryssa. Þar fór Charlotta Oddsdóttir, sérfræðingur í frjósemismálum, yfir stöðuna á frjósemismálum íslenska hrossastofnsins. Niðurstaða greinarinnar var einföld: Við höfum ekki nauðsynleg gögn undir höndum, hvorki til að leggja mat á né fylgjast með þróun á frjósemi íslenska hrossastofnsins. Sjá hér: Grein I
Í þessari annarri grein snúum við okkur að helstu orsakavöldum frjósemisvanda og flokkum þá gróflega í tvennt, annars vegar í almenna og hins vegar sértækari.
Almennir áhrifaþættir
„Almennir þættir í heilsufari hryssu geta haft áhrif á frjósemina, til dæmis ef hryssa verður annað hvort of feit eða grönn, sem getur haft áhrif á hormónabúskapinn,“ segi Charlotta. „Sýnt hefur verið fram á að hryssur í aflögn eða orkumínus fyljast síður heldur en þær sem eru í jákvæðum orkubúskap. Þess vegna er mikilvægt að byrja strax að hausti að grenna feita hryssu sem ekki hefur fyljast það sumarið, og leyfa henni þá frekar að bata sig að vorinu, sem bætir getu hennar til að fyljast. Einnig má hafa í huga að eldri hryssur geta haft úr færri gangmálum að spila og því er vænlegra til árangurs að halda þeim í byrjun sumars.“
Það getur því þurft að huga að fyljun næsta sumars strax að hausti. Hvort sem um ræðir of feita eða of granna hryssu er lykillinn, rétt eins og við annan búpening, eldið á þeim tíma er hryssan skal fyljast.
„Einnig er mjög verðmætt ef hryssueigendur halda góða skrá yfir frjósemissögu hryssunnar, því það eru mikilvægar upplýsingar sem gera greiningu vandamálsins auðveldari.“
Sértækir áhrifaþættir
Hinir sértækari þættir sem áhrif hafa á frjósemi eru oft flóknari. Þeir krefjast aðstoðar dýralæknis og í kjölfarið inngripa. Þessi helstu vandamál eru:
• Legbólga (í rúmlega 30% þeirra hryssa sem Charlotta fær til greiningar)
• Stífur legháls (í um 45% hryssa sem koma til greiningar)
• Óeðlileg fitusöfnun með vísbendingar um efnaskiptaröskun (EMS)
• Afleiðingar erfiðrar köstunar og fastar hildir
Legbólga í hryssum getur verið þrálát og orsakir margs konar, m.a. annars stífur legháls. Af því leiðir að meðhöndlun getur verið áskorun. Hér á eftir beinum við sjónum okkar að fyrstu tveimur kvillunum, þeim algengustu í hryssum sem koma til greiningar hjá Charlottu.
Orsakir legbólgu
„Legbólga er eðlilegt viðbragð hjá hryssu við aðskotaefnum/-frumum í leginu. Þegar hryssa er að ganga sér estrógen frá vaxandi eggbúi til þess að legslímhúðin verður ríkari af ónæmisfrumum og vessavökva. Þetta gerir legið viðbúið að taka við því sem berst inn í legið frá stóðhestinum og þau bólguviðbrögð sem koma í kjölfarið eru eðlileg. Hins vegar á bólgan að ganga hratt yfir. Ef legbólga er enn til staðar einum til tveimur sólarhringum síðar, þarf að meðhöndla hryssuna og hjálpa henni að hreinsa legið. Það skal taka fram að þetta langalgengasta form legbólgu er ekki af völdum sýkingar. Og gott er að taka fram að legbólga veldur almennt ekki öðrum einkennum hjá hryssunni, þ.e. hún fær ekki hita eða verður slöpp, og það safnast ekki alltaf fyrir vökvi í legholinu.“
Legbólga sem slík felur því ekki endilega í sér sjúklegt ástand. Öllu heldur er hún hluti af náttúrulegu ferli í gangmáli hryssunnar. Það er þegar legbólgan fer út fyrir eðlileg mörk og verður viðvarandi, sem hún getur valdið vandræðum.
„Í þeim tilfellum sem bakteríur valda legbólgu, er Streptococcus zooepidemicus langalgengust, en hún er hluti af flórunni sem finnst á skeiðarslímhúðinni. Það er því ekki sjálfgefið að hryssa sé með sýkingu þegar ræktast streptókokkar úr æxlunarfærum og þess vegna er mjög mikilvægt að taka alltaf frumusýni til að skoða samhliða ræktun. Ef sýnið inniheldur yfir lágmarksfjölda bólgufrumna, þá bendir það til legbólgu.“

Skolvökvi úr graftarlegbólgu. Mynd: Charlotta Oddsdóttir.
Sýking af völdum streptókokka getur komið til vegna þess að þeir fá aðgengi að leginu og halda þar velli, og mögulega getur einnig verið ójafnvægi í hinni náttúrulegu flóru hryssunnar. Uppruni sýkingarinnar er þá ljós, hann er til staðar í hryssunni sjálfri.
„Helsta orsökin fyrir því að bakteríur valda legsýkingu er truflun á náttúrulegum vörnum hryssunnar. Auk fyrrnefndra eðlilegra bólguviðbragða eru skeiðarop, skeið og legháls þannig byggð að þau gera bakteríum erfitt fyrir að komast að leginu. Einnig tryggja þau að hland renni ekki fram að leghálsi og legi. Aðrar sýkingar sem geta komið við sögu eru E. coli, Klebsiella pneumoniae og sveppasýkingar, sem eru mun óalgengari. Ekki er hægt að tala um smitandi sýkingu þegar ofangreindar örverur eru annars vegar, þar sem sýkingin stafar af því að varnir hryssunnar bregðast.“
Til nokkurrar einföldunar mætti því segja að orsökin sé til staðar í hryssunni sjálfri. Það er hins vegar „hreinsibúnaðurinn“ sem klikkar. En hvað með hinar utan að komandi uppsprettur. Geta bakteríur borist að utan, inn í leg hryssunnar og valdið legbólgu?
„Streptókokkar finnast einnig í sæði stóðhesta og E. coli getur verið til staðar á skeiðaropi hryssu en hryssa með allar sínar varnir á að standast þá áskorun. Engar þeirra örvera sem nefndar hafa verið eru kynsjúkdómavaldar en bakterían Taylorella equigenitalis sem veldur smitandi legbólgu (CEM) hefur ekki fundist í hrossum á Íslandi. Sett hefur verið upp greiningarpróf fyrir bakteríunni á Keldum og hafa öll sýni verið neikvæð.“
Við getum prísað okkur sæl á meðan veggspjaldið, þarna baka til, í Leifsstöð ver okkur fyrir þeim vágesti.
„Hér er hins vegar til kynsjúkdómurinn smitandi kynfæraútbrot (e. equine coital exanthema) af völdum herpesveiru,“ segir Charlotta. „Hann veldur ekki legbólgu heldur takmarkast við blöðrur og sár á skeið og skeiðaropi, skaufa og skaufhúsi, sem gróa með tímanum og skilja stundum eftir sig hvít ör.“
Hvaða áhrifaþættir legbólgu eru þá algengastir?
„Mikilvægur áhrifaþáttur í legbólgu hjá mörgum af þeim hryssum sem ég hef greint og meðhöndlað gegnum árin er stífur legháls, sem slaknar ekki á gangmáli eins og hann á að gera. Leghálsinn er milli skeiðarinnar og legsins og sér um að halda leginu þétt lokuðu milli gangmála og á meðgöngu. Þegar hryssan er að ganga verða hormónaáhrif til þess að leghálsinn slaknar og opnar inn í legið. Sæði frá hestinum á þá greiða leið inn, en einnig er auðveldara fyrir legið að hreinsa sig aftur, samkvæmt því sem áður er lýst. Stífur legháls á því alltaf að leiða hugann að legbólgu og meðferð eftir að hryssu er haldið eða hún sædd. Stífur legháls sést einkum hjá hryssum sem er verið að halda í fyrsta sinn upp úr ca. 9 vetra aldri, og gjarnan hjá hryssum sem hafa verið í mikilli þjálfun fram að því. Orsakirnar eru þó ekki þekktar. Þess má geta að langoftast hættir þetta að vera vandamál hjá hryssunni ef tekst að fylja hana og hún kastar eðlilega.“
Ástæða hins stífa legháls er ókunn að sögn Charlottu. Stífi leghálsinn getur orðið til þess að legbólgan verður viðvarandi, þ.e. stífur legháls gerir það að verkum að hryssan nær ekki að hreinsa sig eðlilega og úr verður legbólga.
Greining legbólgu
„Greining á legbólgu fer þannig fram að fyrst er tekin sjúkrasaga og góð almenn skoðun á hryssunni. Síðan þarf að þukla og sónarskoða leg og eggjastokka til að kanna stöðuna. Ein sónarskoðun gefur bara augnabliksmynd og það er ekki alltaf hægt að greina legbólgu nema fleiri skoðanir fari fram. Til dæmis getur legbólga dulist þegar hryssa er að ganga, því legslímhúðin er eðlilega vessafyllt (bjúgur) og það getur verið eðlilegt að sjá vökva í legholi á gangmáli. Við hverja sónarskoðun fæst betri mynd og frekari upplýsingar um hryssuna.“
Charlotta segir viðvörunarbjöllur fara í gang þegar bjúgur sést í legslímhúð á síðgangmáli, þ.e. milli gangmála.
„Þá er komin vísbending um legbólgu. Það getur einnig átt við ef það sést vökvasöfnun í legholi við sónarskoðun þó hryssan sé að ganga, ef það er meira en sólarhringur síðan hryssunni var haldið.“
Það er því vökvinn (bjúgurinn) í legslímhúðinni sem horfa þarf eftir. Slíkur vökvi þarf ekki að þýða að til staðar sé legbólga, en getur gert það ef hann er óeðlilegur miðað við gangmál hryssunnar.

Folald á spena. Mynd: Charlotta Oddsdóttir.
Meðhöndlun
Hvernig er legbólga meðhöndluð? Er meðhöndlunin mismunandi og ræðst þá af orsökunum hverju sinni?
„Ef til dæmis sést vökvasöfnun í legholi þegar meira en sólarhringur er síðan hryssunni var haldið getur þurft að skola legið og nota samdráttarhormón (oxytocin) til að tæma það. Þetta er mjög væg meðhöndlunarleið en er mjög árangursrík í langflestum tilfellum, og oft er nóg að nota eingöngu oxytocin.“
Legvökvi getur innihaldið efni og ónæmisfrumur sem valda fósturvísum skaða, og þannig truflað fósturvísi við að festast í leginu. Við meðferðina hreinsast vökvinn úr leginu og ef það hefur tekist áður en fósturvísirinn kemur niður í legið, aukast líkurnar á að hann festi sig.
„Aðalatriðið með þessar hryssur er að þær séu skoðaðar daglega á gangmálinu og staðan metin reglulega. Sérstaklega skiptir þetta máli með hryssur sem er verið að halda eða sæða, því með því að skoða þær endurtekið og meðhöndla rétt á gangmálinu, getur skilið á milli þess að hryssan fyljist eða fari geld frá hestinum. Eftir að egglos hefur orðið líða nefnilega 6-7 dagar áður en fósturvísir kemur niður í legið, og það er því óhætt að skola legið allt að 5 dögum eftir egglos, án þess að fósturvísirinn skolist út.“
En hvað er til ráða í öðrum tilfellum?
„Ef þessi vægari meðhöndlun hrífur ekki, getur þurft að taka legsýni til ræktunar og frumuskoðunar til að taka afstöðu til mögulegrar bakteríusýkingar sem þarf þá að meðhöndla. Almennt er lyfjameðhöndlun í leg best við legsýkingum.“
Í þeim tilfellum er legið skolað, sýni er tekið úr þeim vökva og sent til greiningar. Einnig er hægt að taka stroksýni, en það er ekki eins hentugt til frumuskoðunar, segir Charlotta. Ef óæskilegar bakteríur ræktast úr sýninu og frumuskoðun sýnir fram á legbólgu þarf að ráða niðurlögum þeirra í legi hryssunnar. Þá er mikilvægt að notuð séu sýklalyf sem verka á hlutaðeigandi bakteríur. Líkt og Charlotta tekur fram er áhrifaríkast að meðhöndla hryssuna beint í leg; ráðast beint að rót vandans. Sú meðferð hefur þá ekki áhrif víðar en á leg hryssunnar (þ.e. veldur ekki sambærilegu róti á annarri flóru, svo sem meltingarveg ef sýklalyf er gefið um munn eða í vöðva).
Meðhöndlunin getur reynst flóknari ef bakteríur greinast sem hafa mikla mótstöðu gegn sýklalyfjum eða mótstöðu gegn almennari lyfjum svo grípa verður til breiðvirkari lyfja.
Samantekt
Draga má umfjöllunina saman í eftirfarandi megin atriði:
– Fyrst ber að huga að almennu heilbrigði hryssunnar
– Ef vandamál koma upp við fyljun þarf skoðun dýralæknis
– Vakni grunur um legbólgu við skoðun getur þurft nokkrar sónarskoðanir svo meta megi ástandið út frá breytileika legsins á mismunandi tíma gangmálsins
– Vægari meðhöndlun: Hryssa fær aðstoð með að losa vökva úr legi með samdráttarhormóni og legskolun
– Frekari inngrip: Sýni úr legi hryssu ræktað og meðferð valin í samræmi við niðurstöður þeirrar ræktunar.
Um óeðlilega fitusöfnun, truflun á egglosi, hrörnunarbreytingar í legslímhúð, fastar hildir og áverka eftir köstun verður fjallað í grein III.
Margareterhof er selt
Átta hlutu gullmerki LH
Suðurlandsdeildin áfram á EiðfaxaTV
Heim í hlað – Ný þáttaröð á EiðfaxaTV