Fróði frá Staðartungu á leið til Þýskalands

  • 25. febrúar 2021
  • Fréttir

Fróði frá Staðartungu, knapi er Sigurður Sigurðarson. Mynd: Jens Einarsson

Enn einn gæðingurinn er nú á leið úr landi, en stóðhesturinn og Landsmótssigurvegarinn Fróði frá Staðartungu hefur verið seldur til Þýskalands.

Fróði er fæddur árið 2002, undan Hágangi frá Narfastöðum og Væntingu (Blíðu) frá Ási. Ræktandi hans er Jón Pétur Ólafsson. Hann hlaut sinn hæsta kynbótadóm árið 2008, 8,20 fyrir sköpulag og 8,85 fyrir hæfileika, aðaleinkunn upp á 8,59. Knapi þá var Þórður Þorgeirsson.

Árið 2012 stóð Fróði efstur á A-flokki á Landsmóti í Reykjavík með einkunnina 8,94. Knapi hans þá var Sigurður Sigurðarson.

Nýir eigendur Fróða eru þau Lisa Helbig og Peter Langenbach. Fróði mun yfirgefa fósturjörðina þann 20. mars nk. á leið til síns nýja heimilis, Breedingfarm Þórsholt í Þýskalandi.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link