Fróði og Siggi sigruðu A-flokk
Fáir bjuggust við því en Fróði frá Staðargungu og Sigurður Sigurðarson sigruðu stórkostlegum lokaúrslitum þessa glæsilega landsmóts. Aðeins örfáar kommur skildu að þá flottu gæðinga sem tóku þátt í A-úrslitunum.
Sýning á tölti var jöfn, enda hlutu þrír hestar sömu einkunn. Hæstur var þó Fláki frá Blesastöðum 1A sem fékk 8,92 og voru áhorfendur heyranlega á sama máli og dómarar því þeir fögnuðu einkunn hans. Knapi Fláka var Þórður Þorgeirsson og voru þeir félagar taldir sigurstranglegir, enda efstir inn í úrslit.
Gæðingarnir voru nokkuð jafnir á brokki, Stakkur frá Halldórsstöðum var í stuði hjá Sigurbjörni Bárðarsyni og hlutu hæstu einkunn keppenda 8,78 á meðan Fláki hlaut lægstu einkunn 8,50. Fláki og Stakkur brokkuðu samhliða og var greinilega nokkur keppni á milli þeirra.
Mikil spenna lá í loftinu þegar gæðingarnir þeystu tvo spretti á skeiði, landsmótsgestir fögnuðu ákaft góðum sprettum. Þar var Lotta frá Hellu í nokkru uppáhaldi hjá áhorfendum, skeiðaði hún taktfast og örugglega og hlaut 9,12 í einkunn fyrir vikið. Luku þau keppni í fjórða sæti, sem er glæsilegur árangur eftir að hafa komið inn úr B-úrslitum í gær.
Sigurður Sigurðarson fór mikinn á Fróða frá Staðartungu og hefur Siggi ekki látið „tapið“ í B-flokki hafa áhrif á keppnisgleði sína. Hlutu þeir glæsilega 8,82 fyrir tölt og uppskáru 9,16 fyrir glæsispretti á skeiði hæstir allra keppenda.
Þegar allar tölur fyrir gangtegundir, vilja og fegurð í reið höfðu verið lesnar upp varð niðurstæðan, nokkuð óvænt, sú að Fróði og Sigurður höfðu sigurorð af verðugum keppinautum, með aðeins brotamun.
Keppandi/ tölt/brokk/skeið/vilji/fegurð í reið/lokaeinkunn
1. Fróði frá Staðartungu og Sigurður Sigurðarson: 8,82 – 8,60 – 9,16 – 9,00 – 8,96 = 8,92
2. Fláki frá Blesastöðum 1A og Þórður Þorgeirsson: 8,92 – 8,50 – 8,92 – 8,84 – 9,02 = 8,88
3. Stakkur frá Halldórsstöðum og Sigurbjörn Bárðarson: 8,62 – 8,78 – 9,08 – 8,98 – 8,78 = 8,86
4. Lotta frá Hellu og Hans Þór Hilmarsson: 8,54 – 8,60 – 9,12 – 8,90 – 8,64 = 8,78
5. Grunnur frá Grund II og Sigursteinn Sumarliðason: 8,62 -8,76 – 8,78 – 8,72 – 8,80 = 8,73
6. Hringur frá Fossi og Sigurður Vignir Matthíasson: 8,64 – 8,70 – 8,80 – 8,72 – 8,70 =8,71
7. Hnokki frá Þúfum og Mette Mannseth: 8,56 – 8,64 – 8,54 – 8,56 – 8,58 = 8,57
8. Sálmur frá Halakoti og Atli Guðmundsson: 8,62 – 8,30 – 8,42 – 8,46 -8,46 = 8,47
Núna kl. 15.30 fara fram pallborðsumræður í reiðhöll, þar sem allir sigurvegarar landsmótsins munu sitja fyrir svörum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH