Fróðleikur fyrir keppnistímabilið

  • 8. maí 2024
  • Fréttir
Nokkur atriði sem vert er fyrir keppendur að hafa í huga.

Keppnistímabilið er í fullum gangi og mót um nánast hverja helgi. Landssamband hestamannafélaga hefur sent frá sér fréttatilkynningu fór mótasviði LH þar sem farið er yfir nokkur atriði sem vert er fyrir keppendur að hafa í huga fyrir tímabilið.

Þar kemur fram að á fyrstu mótum ársins hafi orðið nokkur atvik sem gott er að draga lærdóm af en með þau í farteskinu er hægt að forðast það að sömu mál komi ítrekað upp. Mótasvið LH mun á tímabilinu birta reglulega pistla um ýmis atriði um mótahald til fróðleiks og útskýringa.

Hér fyrir neðan eru þau atriði sem mótasvið LH vill benda keppendum á fyrir tímabilið:

Listi yfir leyfðan búnað

Á heimasíðum LH og Feif eru allar reglur og listi yfir leyfðan búnað.

Aðeins er farið að bera á því að stangir séu útbúnar með bitum á hringjunum sem stoppa hreyfingu á keðjunni (sjá mynd sem fylgir greininni). Allur búnaður sem hefur ”lock up” eiginleika á stöngum er bannaður og því eru stangir sem búnar eru slíkum bita við keðjuna ekki leyfilegur til notkunar í keppni. Listinn yfir leyfðan búnað er mjög góður og skýr og það er mikilvægt fyrir alla knapa að kynna sér hann vel áður en haldið er til keppni. Ef knapar eru í vafa um hvort búnaður þeirra sé löglegur er sjálfsagt að bera það undir yfirdómara móts áður en riðið er í braut.

Afskráningar

Reglur um afskráningu í forkeppni og skeiðgreinum eru þannig að knapi þarf að afskrá að minnsta kosti klukkustund áður en keppni hefst í viðkomandi grein ef hestur telst hæfur til keppni. Ef afskráning berst eftir þann tíma er knapi dæmdur úr leik og allur árangur hans á mótinu strikast út.

Reglur um afskráningu í úrslit eru þannig að knapi þarf að afskrá í úrslit að minnsta kosti klukkustund áður en úrslit viðkomandi greinar hefjast. Það þýðir að afskráning þarf að berast klukkustund áður en B-úrslit í viðkomandi grein fara fram.

Til þess að vera skýr á því:

Knapi í fjórgangi endar í 3. sæti eftir forkeppni og hefur því þátttökurétt í A-úrslitum. Ef hann ákveður að ríða ekki úrslit þarf afskráningin að berast skriflega til mótsstjórnar að minnsta kosti klukkustund áður en B-úrslit greinarinnar fara fram.

Allar afskráningar þurfa að berast skriflega til þess að teljast gildar.

Knapi sem ekki mæti til leiks í úrslitum og hefur ekki afskráð á löglegan hátt fer sjálfkrafa í keppnisbann í 2 vikur (18 ára og eldri miðað við almanaksár) og allur árangur knapans á mótinu strikast út. Knapi í barna- eða unglingaflokki fer ekki í keppnisbann en árangur mótsins ógildist engu að síður. Ef knapi er þegar skráður til keppni á öðrum mótum á meðan á keppnisbanni stendur, er það alltaf á ábyrgð knapans að afskrá sig af þeim mótum.

Yfirdómari og hlutverk yfirdómnefndar

Yfirdómari mótsins hefur ákvörðunarvald í þeim málum sem upp kunna að koma ásamt yfirdómnefnd móts.

Ef upp koma áverkar s.s. ágrip eða sár í munni eða slíkt og yfirdómari telur að um blæðandi sár sé að ræða ber hann ábyrgðina á að taka ákvörðun um að vísa hesti úr keppni við slíkar aðstæður, líkt og ef knapi missir stjórn á hesti sínum eða hestur sýnir kergju í braut.

Yfirdómari móts getur eftir atvikum gefið viðvörun, óopinbera eða opinbera viðvörun, dæmt knapa og hest úr keppnisgrein eða hreinlega vísað fólki af mótssvæði ef þurfa þykir. Það getur átt við í tilvikum um ókurteisi og slæma hegðun gagnvart dómurum eða starfsfólki móts, ósæmileg hegðun gagnvart hestinum innan eða utan vallar, meðvitað svindl og fleira.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar