Frumtamninganámskeið
Hestamannafélagið Fákur og Róbert Petersen reiðkennari verða með frumtamningarnámskeið sem hefst mánudaginn 3. september nk. að er fram kemur í tilkynningu frá Fáki:
„Hver þátttakandi kemur með sitt trippi og farið verður í gegnum helstu þætti frumtamningar, s.s.:
- Atferli hestsins
- Leiðtogahlutverk
- Fortamning á trippi
- Undirbúningur fyrir frumtamning
- Frumtamning
Bóklegir tímar: 2
Verklegir tímar: 11
Tímar: Mánudagskvöld, þriðjudagskvöld og fimmtudagskvöld í fjórar vikur.
Verð: 35.000.-
Fjórir verða í hverjum hópi en hámarksfjöldi á námskeiðið er 12 – 16 þátttakendur. Bóklegir tímar verða sameiginlegir fyrir allan hópinn. Verkleg kennsla verður í Reiðhöllinni og í hesthúsinu hjá Róberti þar sem unnið verður með trippin. Einnig eiga nemendur að fylgjast með öðrum og læra þannig á mismunandi hestgerðir og mismunandi aðferðir við for- og frumtamningu.
Skráning á netfangið [email protected] – lokaskráningarfrestur er fimmtudags 31. ágúst.
Fáksfélagar ganga fyrir en námskeiðið er öllum opið.“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH