Frumtamningar ganga vel á Hólum
Brátt líður að skilasýningu á tamningatrippum hjá 2. ári hestafræðideildar Háskólans á Hólum, en hún verður haldin laugardaginn 23. febrúar nk. Nemendur eru búnir að vera bæði með frumtamningahross og þjálfunarhross frá því skólastarf hófst á ný í byrjun janúar. Hrossin sem eru notuð við námið koma alls staðar að á landinu, frá þekktum hrossaræktarbúum og einnig eru einstaklingar farnir að nýta sér tamninguna á Hólum.
Hverjum nemenda var úthlutað tveimur frumtamningahrossum og eru flestir nemendur farnir að fara á bak á hrossum sínum í 2. eða 3. viku. Fyrstu vikurnar snúast mest um að vinna með hrossið við hendi, kenna þeim að teymast vel og treysta manninum. Allar nýjar ábendingar eru kenndar frá jörðu áður en knapinn fer að taka þær með sér á bak, en mikið er lagt upp úr því að hrossið þurfi fyrst að læra frá jörðu og svo á baki. Einnig eru þau öguð frá jörðu, kennt að virða svæði mannsins með því að víkja undan ábendingu frá keyri bæði að framan og aftan. Þessi vinna hefur sannað sig að vera gríðarlega mikilvægur grunnur í áframhaldandi þjálfun hestsins. Þegar trippið fylgir manninum fúslega og treystir honum er farið í að setja hnakkinn á og sama vinna gerð frá jörðu. Síðan er unnið stig frá stigi að komast á bak, en það getur verið mismunandi eftir hrossum hversu hratt það gengur fyrir sig.
Þá er þeim kennt að skilja grunnábendingar á baki og þegar þau eru orðin vel reiðfær inni er farið í reiðtúr með forreiðarhesti. Þegar 6 vikna tamningu er lokið á trippið að vera vel reiðfært úti, samþykkja létt taumsamband, svara grunnábendingum frá sæti og taum, hægt sé að stjórna hraða og stefnu og svari hvatningu af léttleika. Ekki eru gerðar neinar kröfur um höfuðburð eða gangtegund á þessu stigi, það kemur í áframhaldandi þjálfun hestsins.
Öllum frumtamningartrippum er kennt að teymast við hlið á hesti, fara í víðavangspróf þar sem þeim er riðið yfir þúfur, ár og hindranir að ýmsu tagi og að lokum er skilasýning, þar sem eigendur hrossana koma og skoða afrakstur tamningarinnar. Trippin eru sýnd í reið, bæði inni og úti og eigendur hrossana fá tækifæri til að tala við þann nemanda sem sá um tamningu hestsins.
Skilasýningarnar eru opnar öllum og allir eru velkomnir. Þetta er frábært tækifæri til að kynna sér frumtamningarferlið við Hólaskóla og einnig að sjá unga og efnilega tamningamenn að störfum. Skilasýningin hefst kl 13.00 þann 23. febrúar 2013.
HHG
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH