Frumtamningarnámskeið
Hestamannafélagið Léttir heldur 5 vikna námskeið í frumtamningum í samstarfi við Linu Eriksson reiðkennara C. Hver þáttakandi kemur með bandvant tryppi á tamningaraldri og farið verður í gegnum helstu þætti frumtamningar:
– Atferli hestsins
– Leiðtogahlutverk
– Frumtamningu
Hámarksfjöldi á námskeiði 5 í hóp verð kr. 29.000.
Námskeiðið er tvisvar í viku, kennt verður kl. 17:00 á sunnudögum og kl. 18:00 á þriðjudögum í Léttishöllinni í Lögmannshlíð.
Námskeiðið hefst þriðjudaginn 15. október kl. 18:00 með bóklegum tíma og lýkur 26. nóvember og er 10 verklegir og 2 bóklegir tímar auk heimaverkefna.
Nánari upplýsingar hjá Linu í síma 844 1369.
Skráning er á http://skraning.sportfengur.com/SkraningNamskkort.aspx?mode=add fyrir 13. okt.
Margareterhof er selt
Átta hlutu gullmerki LH
Suðurlandsdeildin áfram á EiðfaxaTV
Heim í hlað – Ný þáttaröð á EiðfaxaTV