Frumtamningarnámskeið í nóvember
Hestamannafélagið Sörli og Róbert Petersen reiðkennari verða með frumtamningarnámskeið í nóvember 2012.
Hver þátttakandi kemur með sitt trippi og farið verður í gegnum helstu þætti frumtamningar, s.s.:
• Atferli hestsins
• Leiðtogahlutverk
• Fortamning á trippi
• Undirbúningur fyrir frumtamning
• Frumtamning
Bóklegir tímar: 2
Verklegir tímar: 11
Tímar: Fjórir verða í hverjum hópi en hámarksfjöldi á námskeiðið er 12 – 16 þátttakendur. Bóklegir tímar verða sameiginlegir fyrir allan hópinn. Verkleg kennsla verður í Reiðhöllinni þar sem unnið verður með trippin. Einnig eiga nemendur að fylgjast með öðrum og læra þannig á mismunandi hestgerðir og mismunandi aðferðir við for- og frumtamningu.
Skráning á netfangið [email protected] – skráningarfrestur er til 20. október 2012. Verð kr. 35.000 fyrir hvern nemanda. Sörlafélagar ganga fyrir en námskeiðið er öllum opið.
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing