FT félagar fá ókeypis aðgang að tryggingavaktinni
Fánareið FT á LM2012
Komið sæl, FT-félagar!
Stjórn Félags tamningamanna kynnir samkomulag sem FT hefur gert við vátryggingamiðlunina Tryggingar og ráðgjöf ehf.
Tryggingar og ráðgjöf ehf munu semja um hóp-afslætti fyrir félaga FT og aðstoða þá við að búa til þá tryggingapakka, sem henta hverjum og einum einstaklingi best. Þessi þjónusta verður gjaldfrí fyrir félagsmenn Félags tamningamanna. FT-Félagar munu einnig fá ókeypis aðgang að “Tryggingavaktinni”, sem er þjónusta sem fyrirtækið býður upp á. Þessi þjónusta yfirfer árlega tryggingar viðskiptavina sinna sjálfvirkt og leitar uppi betri tilboð fyrir hvern einstakling, í öllu tryggingakerfinu.
Til þess að fá upplýsingar um tryggingar og til að geta fengið aðgang að þeirri þjónustu sem í boði er eru félagsmenn beðnir um að skrá sig á póstlista félagsins:
https://tamningamenn.us1.list-manage.com/subscribe?u=189c886a9d561a6802ca864e0&id=9655af84a2
Á póstlistann verða einnig sendar út upplýsingar um fleiri tilboð í boði félagsins, fréttir af ýmsu sem verið er að vinna og fleira. Athugið að einungis skuldlausir félagsmenn fá inngöngu á póstlistann og langar okkur samtímis að hvetja félaga til þess að greiða félagsgjöld fyrir árið 2021, ennfremur hvetjum við alla þá sem rétt hafa á að gerast félagsmenn í Félagi tamningamanna, til að hafa samband við stjórn félagsins og/eða sækja um aðild.
Nánari upplýsingar fást séu send skilaboð hér: [email protected]
Fyrir hönd stjórnar FT,
Johannes Amplatz
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH