FT gerð góð skil á heimasíðu Eiðfaxa
Hér efst og hægramegin á vefnum er tvískiptur „banner“. Annar helmingurinn er tenging inná allt sem birt hefur verið um…
FT afmælishátíðina sem fram fer í reiðhöllinni í Víðidal á laugardaginn kemur. Þar eru nýjustu fréttir um viðburði á hátíðinni, viðtöl og upplýsingar um hina nýju keppnisgrein sem kynnt verður.
Hinn helmingurinn er tenging inná viðtal við Gretti Jónasson, sigurvegara í ungmennaflokki á LM 2008.
Viðtalið er eitt af nokkrum við sigurvegara síðasta Landsmóts í nýjasta tölublaði Eiðfaxa. Blaðið fæst í öllum helstu reiðtygjaverslunum landsins og á sölustöðum N1.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH