Fulltrúaþing FEIF var haldið í síðustu viku
Eins og árið 2021 fór fulltrúaþing FEIF í ár aftur fram í gegnum netið. 16 af 21 aðilarlöndum FEIF sem eiga atkvæðarétt sátu fundinn.
Á fundinum var m.a. tilkynnt um FEIF þjálfar ársins 2021 sem var Camilla Hed frá Svíþjóð, nýju ungu nefndarmeðlimirnir Dóróthea Sigríður Unnsteinsdóttir og Steinar Clausen Kolnes voru kynnt og einnig upplýsti hver nefnd FEIF um störf sín.
Nokkuð langur listi var af frambjóðendum og málefnum sem voru til afkvæðagreiðslu á þinginu. Hægt er að sjá heildarlista og texta um efni í fundarboði þingsins.
Jean-Paul Balz (formaður íþróttanefndar), Silke Feuchthofen (formaður fræðslunefndar) og Inge Kringeland (formaður ræktunarnefndar) voru endurkjörin til tveggja ára. Even Hedland frá Noregi og Will Covert frá Bandaríkjunum voru kjörnir sem stjórnarmeðlimir FEIF. Jens Iverson var endurkjörinn meðlimur gerðardóms (til 3 ára), Caroline van de Bunt sem meðlimur agaráðs (til 3 ára) og fulltrúarnir staðfestu ríkisendurskoðanda fyrir þetta ár.
Ef þig langar að fletta í gegnum kynningu fundarins eða heildartillögurnar: smelltu HÉR
Niðurstöður atkvæðagreiðslunnar, sem afgreiddar voru í gegnum netatkvæðagreiðslu tækni sem sérstaklega hefur verið þróuð fyrir FEIF, má finna HÉR
Allar breytingar á reglum og reglugerðum FEIF verða settar inn í viðkomandi skjöl, sem gilda frá 1. apríl 2022.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH