Fundi um framtíð landsmóta frestað
Vegna dræmrar þátttöku hefur verið ákveðið að fresta fundinum sem vera átti um helgina um framtíð landsmóta.
Aðeins hafa 10 félög af 46 skráð sig, og þar sem við viljum að sem flestir taki þátt í umræðum um landsmót, hefur verið ákveðið að fresta ráðstefnunni fram á haust.
Dagsetning verður auglýst síðar.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landssambandi hestamannafélaga.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH