Fundir um hrossarækt og hestamennsku í vikunni
Almennir fundir um málefni hrossaræktar og hestamennsku verða haldnir á eftirtöldum stöðum í vikunni.
Þriðjudaginn 1. mars. Hvanneyri, Borgarfirði.
Miðvikudaginn 2. mars. Félagsheimili Sleipnis, Selfossi.
Fimmtudaginn 3. mars. Reiðhöllinni í Víðidal, Reykjavík.
Fundirnir hefjast kl. 20.30 og eru öllum opnir sem láta sig málefnin varða.
Frummælendur verða Kristinn Guðnason formaður Félags hrossabænda og fagráðs í hrossarækt, Haraldur Þórarinsson formaður Landssambands hestamannafélaga og Guðlaugur V. Antonsson, hrossaræktarráðunautur Bændasamtaka Íslands.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Bændasamtökunum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH