Fyrir Eddu Rún

  • 19. júní 2020
  • Fréttir
Styrktarsjóður fyrir Eddu Rún Ragnarsdóttur og fjölskyldu.

Stofnaður hefur verið sjóður til að styðja fjárhagslega við bakið á Eddu Rún og fjölskyldu hennar vegna afleiðinga slyss er hún féll af hestbaki í maí síðastliðnum.  Stjórn sjóðsins mun taka ákvörðun um framlög úr sjóðnum eftir fjárhagslegum þörfum fjölskyldunnar hverju sinni.  Eignum sjóðsins verður varið til hvers kyns framfærslu Eddu Rúnar og fjölskyldu hennar, til kaupa á eignum sem tengjast þörfum hennar og fjölskyldu hennar á hverjum tíma og eftir atvikum til niðurgreiðslu á skuldum fjölskyldunnar. Við hvetjum alla til að styðja og styrkja við Eddu Rún og fjölskyldu hennar í þeirri baráttu sem framundan er.

Knapar Meistaradeildarinnar í hestaíþróttum munu keppa til stuðnings Eddu Rúnar Ragnarsdóttur á lokamóti deildarinnar næstkomandi laugardag á Brávöllum á Selfossi.  Knapar munu bera armband í töltinu og klæðast bolum í skeiðinu merktum  „Fyrir Eddu“

Hægt er að styðja málefnið hér: https://tix.is/en/event/10255/styrktarsjo-ur-eddu-runar/

Öll framlög eru þegin af þakklæti og munum að margt smátt gerir eitt stórt.

Frjálsframlög og fyrritæki: banki 0325-26-006402 kt: 640206-0710

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar