Fyrirlestur Einars Öder
Skeiðfélagið minnir á fyrirlestur Einars Öder Magnússonar nú á fimmtudagskvöldið: Sprett úr spori! Uppbygging afrekshests. En þar mun Einar miðla af þekkingu sinni og fara yfir þær þjálfunaraðferðir sem hafa reynst honum best í gegnum tíðina við uppbyggingu á skeiðhestum.
Farið verður um víðan völl og viðstaddir leiddir um króka og kima í reynslubanka Einars. Hann mun auk þess beina sjónum sínum að því sem best hefur reynst hjá erlendum starfsbræðrum við þjálfun afrekshesta.
Í lok fyrirlestrarins verður gestum gefinn kostur á því að spyrja Einar spjörunum úr.
Þennan fyrirlestur má enginn láta fram hjá sér fara og ekki þarf að láta slíkt henda af fjárhagsástæðum – enda er aðgangur í boði Skeiðfélagsins!
Athugið breytta tímasetningu: Fyrirlesturinn verður haldinn í Hliðskjálf á Selfossi, kl. 20.00 fimmtudagskvöldið 27. mars næstkomandi. En húsið opnar kl. 19.30
Styttu haustið með EiðfaxaTV