Fyrirlestur um magasár
Fimmtudaginn 18. nóvember ætlar Fáksfélaginn og dýralæknaneminn Úndína Ýr Þorgrímsdóttir að halda fyrirlestur um magasár, lokaverkefnið sitt og rannsóknina sem hún er að gera. Úndína Ýr er að læra dýralækningar í Kaupmannahöfn og er á lokametrunum.
Hún hlakkar til að fræða okkur Fáksfélaga um þennan lífsstílstengda sjúkdóm hjá hestum. Fyrirlesturinn fer fram í salnum í TM reiðhöllinni og sérstakur gestur á fyrirlestrinum verður Einar Ásgeirsson frá Fóðurblöndunni. Hann mun flytja stutt erindi tengt fóðrun og verður með frábær tilboð á vörum frá Fóðurblöndunni.
Sóttvarna verður gætt í hvívetna og gestir eru hvattir til þess að hafa grímu meðferðis. Sprittbrúsarnir verða svo klárir á kantinum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH