Fyrirlestur um tannheilbrigði
„Sonja Lindal Þórisdóttir frá Lækjamóti, dýralæknir, reiðkennari og tamningamaður mun vera með erindi um tannheilbrigði íslenskra hrossa í Funaborg, félagsheimili hestamannafélagsins Funa á Melgerðismelu, föstudaginn 12. febrúar klukkan 20.00. Efni fyrirlestrarins var viðfangsefni í lokaverkefni Sonju í dýralæknanáminu og spannar hennar starfsvið að stórum hluta í dag. Mikil umræða hefur verið um tannheilbrigði, tannröspun og munnáverka á síðustu árum og hvetjum við alla áhugasama til að mæta og kynna sér málið frá hlið dýralæknis, tamningamanns og reiðkennara. Aðgangseyrir er 500 krónur – allir velkomnir“
Fræðslunefnd Funa
www.funamenn.is
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH