Fyrsta folaldið fætt í Auðsholtshjáleigu-
Á vef þeirra Gunnars Arnarsonar og Kristbjargar Eyvindsdóttur, hrossaræktenda í Auðsholtshjáleigu, kemur fram að fyrsta folald ársins sé fætt: „Hann kom í heiminn 13.04.2010. Brúnn loðinn hnoðri undan Gígju frá Auðsholtshjáleigu og Gaum frá sama bæ. Báðir foreldrar hafa hlotið 9,05 fyrir hæfileika svo að nú er bara að bíða og sjá hvað sá stutti gerir þegar þar að kemur, en miklar eru væntingarnar.„
Það má ímynda sér að sá stutti verði hæfileikabomba ef honum kippir í kynið. Það er heimasætan á bænum sem er ræktandi þess brúna, sem ekki hefur hlotið nafn enn sem komið er. Þau tvö hross sem hafa verið sýnd undan Orradótturinni Gígju, hafa farið í 1.verðlaun svo vissulega hljóta væntingarnar að vera miklar til hins nýfædda sonar.
Dómur Gígju frá 2002, sýnandi var Atli Guðmundsson, heimildin Worldfengur.com:
Aðaleinkunn: 8,64
Sköpulag: 8,02
Höfuð: 8,0
4) Bein neflína 7) Vel borin eyru
Háls/herðar/bógar: 8,0
5) Mjúkur
Bak og lend: 8,5
5) Djúp lend 7) Öflug lend
Samræmi: 8,0
1) Hlutfallarétt 5) Sívalvaxið
Fótagerð: 7,5
Réttleiki: 7,5
Hófar: 8,5
3) Efnisþykkir 7) Hvelfdur botn
Prúðleiki: 8,5
——————————
Kostir: 9,05
Tölt: 9,0
2) Taktgott 3) Há fótlyfta 6) Mjúkt
Brokk: 8,5
5) Há fótlyfta
Skeið: 9,5
1) Ferðmikið 4) Mikil fótahreyfing
Stökk: 8,5
2) Teygjugott
Vilji og geðslag: 9,5
1) Fjör 4) Þjálni 5) Vakandi 6) Gleði
Fegurð í reið: 9,0
1) Mikið fas 2) Mikil reising 4) Mikill fótaburður 5) Fallegur taglb.
Fet: 8,0
Hægt tölt: 9,0
Hægt stökk: 8,0
Dómur Gaums frá 2008, sýnandi var Þórður Þorgeirsson, heimild Worldfengur.com:
Aðaleinkunn: 8,69
Sköpulag: 8,13
Höfuð: 8,0
4) Bein neflína 5) Myndarlegt 8) Vel opin augu
Háls/herðar/bógar: 8,0
6) Skásettir bógar 7) Háar herðar B) Þykkur
Bak og lend: 8,5
1) Mjúkt bak 4) Löng lend 7) Öflug lend
Samræmi: 8,5
1) Hlutfallarétt 2) Léttbyggt 4) Fótahátt
Fótagerð: 8,0
1) Rétt fótstaða 2) Sverir liðir G) Lítil sinaskil
Réttleiki: 8,0
Hófar: 8,0
2) Sléttir 3) Efnisþykkir
Prúðleiki: 8,0
———–
Kostir: 9,05
Tölt: 9,5
1) Rúmt 2) Taktgott 5) Skrefmikið
Brokk: 9,0
1) Rúmt 2) Taktgott 3) Öruggt
Skeið: 8,5
1) Ferðmikið 3) Öruggt
Stökk: 8,0
4) Hátt
Vilji og geðslag: 9,5
1) Fjör 4) Þjálni
Fegurð í reið: 9,0
1) Mikið fas 2) Mikil reising 3) Góður höfuðb.
Fet: 8,0
Hægt tölt: 8,5
Hægt stökk: 8,0
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH