Fyrsta kynbótasýningin í Hollandi

  • 6. júní 2022
  • Fréttir

Óskadís frá Breiðablik Mynd: NSIJP

Ellefu hross hlutu fullnaðardóm

Fyrsta kynbótasýningin í Hollandi fór fram nú um helgina. Tólf hross voru skráð á sýninguna, hlutu 11 hross fullnaðardóm og eitt af þeim fyrstu verðlaun.

Dómarar á sýningunni voru þau John Siiger Hansen (DK), Nina Bergholtz (SE) og Thomas Grégoire (NL).

Tangó vom Mönchhof, 8 vetra, var sýndur af Isabelle Füchtenschnieder en Tangó hlaut í aðaleinkunn 8,21, fyrir sköpulag hlaut hann 8,24 og fyrir hæfileika 8,19.

Efsta hollensk ræktað hrossið var hin átta vetra Óskadís frá Breiðablik, undan Eðlu frá Breiðablik og Djákna frá Flagbjarnaholti. Óskadís hlaut 8,03 fyrir sköpulag, 7,36 fyrir hæfileika sem gerir 7,60 í aðaleinkunn.

Nokkur hross voru skráð á sýninguna sem Þórður Þorgeirsson átti að sýna en hann hefur sýnt nokkur hross í Hollandi undanfarin ár. En þar sem Þórður datt af baki nýlega gat hann ekki mætt og sýnt og ákváðu nokkrir ræktendur að mæta ekki með hrossin sín í dóm.

Hér fyrir neðan er listi yfir þau hross sem voru dæmd á sýningunni raðað eftir aðaleinkunn. 

Hross á þessu móti S. H. Ae. Sýnandi
DE2014173929 Tangó vom Mönchhof 8.24 8.19 8.21 Isabelle Füchtenschnieder
DE2016143360 Arður vom Forstwald 8.18 7.98 8.05 Karly Zingsheim
AT2013241292 Faxa von der Krähenweide 8.1 7.93 7.99 Isabelle Füchtenschnieder
IS2017181100 Stelkur frá Holtsmúla 1 8.35 7.66 7.9 Mw. E. van der Veer
IS2012286071 Orka frá Árbakka 7.86 7.9 7.89 Karly Zingsheim
IS2016186910 Jósep frá Feti 8.17 7.52 7.75 Isabelle Füchtenschnieder
NL2015200052 Óskadís frá Breiðablik 8.03 7.36 7.6 Mw. C.W.M. van Nunen
IS2015281117 Diljá frá Holtsmúla 1 7.88 7.32 7.52 Mw. E. van der Veer
NL2017100094 Arion frá Rósagrund 7.99 7.09 7.41 Mw. C.M. Roosen
DE2014173881 Friður von der Stiftsmühle 7.53 7.22 7.33 Dominique Zinser
DE2009241669 Gletting vom Lindenhof 7.71 6.51 6.93 Mw. K.A. Parel
IS2016158455 Börkur frá Enni 7.99 Mw. C.M. Roosen

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link