Fyrsta Landsbankamót Sörla á laugardag
Fyrsta Landsbankamót Sörla verður haldið 26. febrúar, kl.13 að Sörlastöðum í Hafnarfirði. Keppt verður í tölti á beinni braut. Allir keppendur í sama flokki eru saman á vellinum. Þeir ríða hver á eftir öðrum til dóms. Sýna skal hægt tölt aðra leið og frjálsa ferð hina, eftir fyrirmælum þular.
Fimm til tíu efstu keppa til úrslita sem eru riðin strax að lokinni forkeppni. Auk þessa er keppt í 100 m. skeiði. Mótin eru opin öllum hestamönnum. Athugið breytta flokkaskiptingu
Flokkar í boði:
Opinn flokkur Atvinnumenn, mjög mikið keppnisvanir
1. flokkur Mikið keppnisvanir
2. flokkur Keppnisvanir
3. flokkur Byrjendur/lítið keppnisvanir
Heldrimannaflokkur 50+
Ungmenni
Unglingar
Börn
Pollar – skipt í hópa þeirra sem ríða sjálfir og þeirra sem teymt er undir.
100 m. skeið Athugið að nú er sú breyting að byrjað er á skeiði (kl. 13)
Nú eru allir flokkar blandaðir kynjum
Skráningargjald er 1.500 kr. fyrir alla flokka nema fyrir polla og skeið en þá er gjaldið 1.000 kr. Skráning er frá kl. 11– 12 á mótsdaginn. Posi á staðnum.
Keppendur athugið: Greiða skal skráningagjald við skráningu. Það eru keppnisnúmer í mörgum hesthúsum, vinsamlegast skilið þeim.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH