1. deildin í hestaíþróttum Fyrsta mót 1. deildarinnar á föstudaginn

  • 21. febrúar 2024
  • Fréttir

Mynd: Alendis.is

Dregið verður í ráslista í opinni dagskrá í kvöld

Fyrsta mót 1.deildarinnar í hestaíþróttum verður n.k. föstudag, 23. febrúar. Margir öflugir knapar og hestar munu spreyta sig í Samskipahöllinni.

Veitingasalan opnar í veislusalnum kl. 17:00 en keppni hefst kl 19:00. Á boðstólum verður lambalæri með rótargænmeti, brúnni sósu og kartöflugratíni. Stjórn 1. deildarinnar hvetur hestafólk til þess að fjölmenna í stúkuna og fylgjast með þessari nýju deild.

Ráslistar verða kynntir í þætti á Alendis.is í kvöld, miðvikudaginn 21.febrúar, í opinni dagskrá kl 20:00.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link