Fyrsta mót Húnvetnsku liðakeppninnar
Fyrsta mót Húnvetnsku liðakeppninnar verður fer fram 17. febrúar nk. í Þytsheimum Hvammstanga. Keppt verður í fjórgangi.
„Þá fer að styttast í fyrsta mót Húnvetnsku liðakeppninnar en það verður 17. febrúar nk og verður að vera búið að skrá á miðnætti þriðjudagsins 14. febrúar. Skráning er hjá Kollu á mail: [email protected]. Keppt verður í fjórgangi í 1. flokki, 2. flokki, 3. flokki og flokki 17. ára og yngri (fædd 1995 og seinna) Það sem koma þarf fram er nafn og kennitala knapa, lið, hestur, IS númer og upp á hvora hönd á að ríða. Það verða tveir inn á í einu og er prógrammið í forkeppni, hægt tölt – fegurðartölt – fet – brokk – stökk og er stjórnað af þul. En úrslit verða riðin eins og venjulega, hægt tölt – brokk – fet – stökk – fegurðartölt.
Skráningargjaldið er 1.500 fyrir fullorðna og 500 fyrir unglinga 17 ára og yngri og verður að greiða inn á reikning 0159-15-200343 kt. 550180-0499 áður en mót hefst.
Aðgangseyrir er 1.000 en frítt fyrir 12 ára og yngri,“ segir í tilkynningu frá mótanefnd liðakeppninnar.
Meðfylgjandi er opnunarmyndband mótaraðarinns.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
LH auglýsir eftir mótshöldurum