Fyrsta vetrarmót Sleipnis
Þá er komið að fyrsta vetrarmóti félagsmanna Sleipnis sem verður haldið laugardaginn næstkomandi 8.Febrúar á Brávöllum Selfossi kl 13.
Keppt verður á hringvelli í Opnum flokki, Áhugamannaflokki 1, Áhugamannaflokki 2, Ungmennaflokki , Unglingaflokki, Barnaflokki (aldur 10-13) og Pollaflokki (skipt í tvo hópa s.s teymt undir og án teymingar).
Skráninargjöld:
Frítt fyrir börn og polla
500 kr fyrir unglinga
1000 kr fyrir ungmenni
1500 kr fyrir fullorðna
Skráning fer fram í dómaraskúr við völlinn kl. 11:00 til 12:00.
Skráning í símum: 7717802 og 8455034 þá þarf að borga með korti.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH