Fyrsti doktorsneminn á sviði dýralækninga hérlendis
Helga Gunnarsdóttir dýralæknir.
Helga Gunnarsdóttir, dýralæknir hesta, hóf nýverið doktorsnám á sviði dýralækninga við Landbúnaðarháskóla Íslands. Helga úrskrifaðist frá Dýralæknaskólanum í Hannover í Þýskalandi árið 2002 og lauk þriggja ára sérfræðinámi í skurðlækningum stórra dýra frá Háskólanum í Ghent í Belgíu árið 2012. Helga hefur alls um 20 ára starfsreynslu við hestalækningar, bæði hér heima og erlendis.
Verkefni hennar heitir Hlutlæg greining á helti í íslenska hestinum (Objective lameness detection in Icelandic horses) og er hluti af stóru, fjölþjóðlegu rannsóknarverkefni á sviði hreyfigreiningar hrossa.
Markmið verkefnisins er að meta ávinning hlutlægra mælinga á helti samanborið við hefðbundna, sjónræna heltigreiningu í þeim tilgangi að auka heilbrigði, endingu og velferð íslenska hestsins. Ennfremur að bæta þekkingu á áhrifum helti á hreyfimynstur og ganglag íslenska hestsins og bæta þannig aðferðir við sjónrænt mat á helti.
Aðal leiðbeinandi Helgu er Dr. Sigríður Björnsdóttir, gestaprófessor við skólann, en auka leiðbeinendur Dr. Marie Rhodin og Dr. Elin Hernlund frá Landbúnaðarháskóla Svíþjóðar.
Til minningar um Ragnheiði Hrund
Nýr landsliðshópur kynntur
Ráslisti fyrir fjórgang Meistaradeildarinnar