Fyrsti þáttur í þáttaröðinni „Á mótsdegi“
Fyrsta mótið í Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum fór fram fimmtudaginn 22.janúar. Eiðfaxi TV sýnir beint frá Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum ásamt því að gefa út annað efni tengt deildinni. Í kvöld kl 20:00 kemur út fyrsti þáttur í þáttaröðinni Á mótsdegi.
Þættirnir gefa áhorfendum innsýn í það hvernig það er að vera keppandi í Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum, hvað felst í undirbúningi og hvernig mótsdagurinn lítur út frá sjónarhóli keppendans.
Fyrsti knapinn sem Ásta Björk Friðjónsdóttir, þáttarstjórnandi, fylgdi eftir var hún Jóhanna Margrét Snorradóttir en hún keppti á Bút frá Litla-Dal fyrir lið Hestvit/Árbakka sem vann liðakeppnina í fyrra. Hitti Ásta Jóhönnu Margréti fyrsta á Árbakka þar sem Jóhanna Margrét var að undirbúa sig fyrir kvöldið og fór síðan með henni í HorseDay höllina um kvöldið.
Ekki missa af þessum þætti og svo miklu meira til á www.eidfaxitv.is og tryggðu þér áskrift
Næsta keppni í Meistaradeildinni er slaktaumatölt fimmtudaginn 6. febrúar í HorseDay höllinni.
Eiðfaxi TV er aðgengilegt á vefnum, í snjallsímum, Apple TV, Android TV, Google TV og Amazon Fire TV.
Ef einhverjar spurningar vakna eða þú þarft aðstoð vegna kaupa á áskrift þá getur þú sent okkur tölvupóst á [email protected]. Við hvetjum þá sem ætla að tryggja sér áskrift að gera það tímanlega svo hægt sé að aðstoða fólk ef eitthvað kemur upp.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH