Fyrstu viku kynbótasýninga lokið

  • 6. júní 2020
  • Fréttir
Jökull frá Breiðholti í Flóa stóð hæstur á Gaddstaðaflötum

Fyrstu viku vorsýninga kynbótahrossa lokið.

Nú er lokið fyrstu viku af þremur í röð vorsýninga kynbótahrossa, alls voru skráð til dóms 129 hross en 105 luku fullnaðardómi. Dæmt var á Gaddstaðaflötum við Hellu og í Spretti í Kópavogi.

Á Gaddstaðaflötum við Hellu stóð efstur Jökull frá Breiðholti í Flóa með risaeinkunn upp á 8,81. Jökull er fallega byggður alhliða gæðingur, en einkunn hans fyrir sköpulag er 8,75 og fyrir kosti 8,84 hæst hlaut hann 9,5 fyrir samstarfsvilja. Jökull er sonur heiðursverðlaunahrossana Hugins frá Haga og Gunnvarar frá Miðsitju.  Ræktandi og eigandi Jökuls er Kári Stefánsson en sýnandi var Árni Björn Pálsson.

Annar stóð Dropi frá Kirkjubæ með aðaleinkunn 8,60. Fyrir Sköpulag hlaut Dropi 8,24 og fyrir kosti 8,80 Dropi er undan Kiljan frá Steinnesi og Dögg frá Kirkjubæ. Dropi hlaut hæst 9,5 fyrir samstarfsvilja. Ræktandi og eigandi Dropa er Kirkjubæjarbúið, sýnandi Dropa var Hanna Rún Ingibergsdóttir.

Efsta klárhross sýningarinnar var Svarta-Perla frá Álfhólum, sannkallað hestagull.  Faðir hennar er Eldhugi frá Álfhólum og móðir Dimmuborg frá Álfhólum. Þessi glæsihryssa átti heldur betur góða daga á Hellu og hreyf þá sem sáu til, einkunnarblað hennar ber þess vel merki en alls hlaut hún sex sinnum 9,5 í einkunn fyrir einstaka þætti, þ.e samræmi, tölt, brokk, hægt stökk, samstarfsvilja og fegurð í reið. Ræktandi Svörtu-Perlu er Sara Ástþórsdóttir en eigandi er Millfarm Corp ehf. Sýnandi Svörtu-Perlu var Árni Björn Pálsson en hann sýndi alls 23 hross í fullnaðardóm í þessari viku.

Í Spretti í Kópavogi komu 30 hross til dóms. þar af aðeins 13 í fullnaðardóm. Efst með 8,39 í aðaleinkunn stóð Pollí frá Mið-Fossum, dóttir Óms frá Kvistum og Sögu frá Strandarhöfða. Ræktandi er Lára Friðbertsdóttir, eigandi er Ingólfur Jónsson, en sýnandi var Viðar Ingólfsson.

Vorsýningum verður fram haldið í næstu viku en þá hefst önnur sýningavikan á Hellu, auk þess sem kynbótasýningar hefjast á Sörlastöðum í Hafnarfirði og norður á Hólum í Hjaltadal.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link